top of page
Grunnnámskeið

GRUNN

NÁMSKEIÐ

BYRJAÐU RÉTT

Við leggjum ríka áherslu á að iðkendur sem ekki hafa stundað CrossFit áður skrái sig á Grunnnámskeið.  CrossFit sameinar styrktar-, úthalds-, og liðleika-þjálfun og því er mikilvægt að líkaminn fái tækifæri til þess að aðlagast nýjum æfingum, hreyfingu og að hver og einn nái tökum á grunntækni æfinga sem notast er við í CrossFit.  

 

Við byrjum rólega og leggjum mikla áherslu á rétta líkamsbeitingu. Álagið er svo aukið jafnt og þétt milli vikna og með því fylgir aukið þrek sem undibýr þig undir áframhaldandi æfingar.  

 

Grunnnámskeiðið er 4 vikna langt og æft er 3 sinnum í viku. Hver æfing er klukkutími í senn og er stýrt faglega af þjálfara. Eftir 4 vikur getur þú mætt í Opna Tíma og haldið áfram að bæta þig. 

Ef að tímar Grunnnámskeiðanna henta ekki býður CrossFit XY upp á sveigjanlegri lausn sem kallast Einkanámskeið og er fyrir einstaklinga og hópa (að hámarki 4 saman í hópi). Fyrirspurn er send og fyrirkomulag sem hentar þjálfara og iðkanda fundið. Einkanámskeið er 5 skipti þar sem tímasetningar og verð er samningsatriði milli iðkanda og þjálfara.

bottom of page